Stefáns Karls Stefánssonar leikara var minnst á dögunum í ríkisháskólanum í Iowa í Bandaríkjunum.
Í frétt Rúv segir:
Klukkur í fornum turni við skólann léku lag úr sjónvarpsþáttunum um Latabæ til að heiðra minningu Stefáns Karls sem öðlaðist heimsfrægð í hlutverki sínu sem Glanni glæpur.
Stefán Karl ferðaðist einnig um öll Bandaríkin sem Trölli í samnefndum söngleik. Hann veiktist af krabbameini árið 2016 og ræddi alla tíð á opinskáan hátt um baráttu sína við sjúkdóminn.
Hér má sjá fréttina á ruv.is