„10. júlí 2019. Afmælisdagurinn hans Stefáns Karls. Stefán sagði mér aftur og aftur allt frá því að við kynntumst að hann myndi deyja ungur. Alltaf fannst mér það heldur ónotalegt þegar hann hafði orð á því. Hvernig gat hann vitað það?“
Þetta segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir en eiginmaður hennar heitinn, Stefán Karl Stefánsson hefði orðið 44 ára í dag hefði lifað. Hinn ástsæli leikari féll frá þann 21. ágúst í fyrra eftir tveggja ára baráttu við krabbamein sem hann greindist með árið 2016.
Stefán kom víða við á ferlinum en hann var hvað þekktastur fyrir hlutverk Glanna glæps í þáttunum um Latabæ og einnig fyrir hlutverk Trölla í uppsetningum á jólasöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum. Hann stofnaði eineltissamtökin Regnbogabörn og hélt mörg hundruð fyrirlestra um einelti. Þá var Stefán Karl sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar í júní árið 2018 fyrir framlag sitt til leiklistar og samfélags. Stefáns Karls verður minnst sem einn hæfileikaríkasti leikari sem þjóðin hefur átt. Þá var Stefán Karl með hjarta úr gulli og lét hann gott af sér leiða á ýmsum sviðum.
Steinunn Ólína segir í dag á Facebook að hún ætli að dvelja við góðu minningarnar, öll skemmtilegheitin og lífsgleðina sem ávallt var aðalsmerki Stefáns Karls. Steinunn segir:
„Þegar ég lít til baka þá bar allt hans skap og æði þessari innri vissu hans vitni. Hann var þyrstur í lífið og þurfti að smakka á því eins og sagt er. Notaði tímann betur en aðrir og afrekaði á við marga menn á stuttri ævi.“
Steinunn segir að nú þegar ekki er liðið ár síðan Stefán Karl féll frá, fylgi hann fjölskyldunni eins og hlýr vindur. Sumir dagar séu þó þyngri en aðrir en á sama tíma hefur smitandi lífskrafturinn sem Stefán Karl bjó yfir gefið fjölskyldunni þrek til að halda áfram og njóta þess að vera til. Steinunn Ólína segir:
„Elsku vinur, í dag bökum við krakkarnir Betty Focker þér til heiðurs. Við vitum að þú ert að byggja eitthvað stórkostlegt í framtíðarlandinu og ætlum ekkert að tefja þig við það. Við elskum þig.“