Uppsagnir eiga sér nú stað í Hádegismóum og blaðamönnum Morgunblaðsins sagt upp störfum þótt enn sé ekki ljóst hve margir þeir eru. Einhverjir taka á sig launalækkanir samkvæmt frétt Vísis um málið.
Sigurður Nordal lét í dag af störfum sem fréttastjóri viðskipta á Morgunblaðinu. Þetta tilkynnti hann samstarfsmönnum í tölvupósti í dag. Samkvæmt heimildum Vísis komst hann að samkomulagi um starfslok. Sigurður hefur verið fréttastjóri viðskipta undanfarin fjögur og hálft ár.
Heimildir Vísis herma að Stefán Einar Stefánsson, viðskiptablaðamaður á Morgunblaðinu og fyrrverandi formaður VR, muni taka við fréttastjórastarfinu.
Fyrr í dag fréttist að Skapti Hallgrímsson, blaðamanni á Morgunblaðinu í fjóra tugi ára hefði verið sagt upp.
Áskriftargjald Morgunblaðsins hækkar um rúmlega 5 prósent um mánaðarmótin og verður 6960 krónur.