Líkt og komið hefur fram í fréttum hófst hvalvertíðin í dag. Á Facebook-síðu sinniskrifar Vilhjálmur að „þegar starfsmenn komu til fundar með forsvarsmönnum Hvals í morgun þá var þeim tilkynnt að enginn mætti vera í Verkalýðsfélagi Akraness heldur yrðu allir að vera í Stéttarfélagi Vesturlands þrátt fyrir að starfsstöð Hvals í Hvalfirði sé á félagssvæði Verkalýðsfélags Akraness.“
Vilhjálmur segir þetta gert „til að reyna að refsa Verkalýðsfélagi Akraness með því að meina starfsmönnum að vera í VLFA vegna þess að Verkalýðsfélag Akraness uppfyllti sínar lagalegu skyldur við að tryggja og varðveita réttindi sinna félagsmanna.“
Nánar á ruv.is;
http://www.ruv.is/frett/segir-starfsfolki-bannad-ad-vera-i-vlfa