Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og 1. varaforseti Alþýðusambands Íslands, rauk út af fundi í Stjórnarráðinu í dag. Á fundinum kynntu stjórnvöld tillögur sínar að skattabreytingum með það fyrir augum að liðka fyrir lausn á kjaradeilu VR, Eflingar, Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélags Grindavíkur við Samtök atvinnulífsins. Vilhjálmur sagði í samtali við Vísi að ef staðan hafi verið alvarleg þá væri hún svo sannarlega alvarleg núna.
Fundinn sátu oddvitar ríkisstjórnarflokkanna þriggja og félagsmálaráðherra ásamt forseta og varaforsetum ASÍ.
Aðspurður um hvað hafi gerst sem hafi verið valdur að því að hann rauk út af fundinum sagði Vilhjálmur: „Ég held að réttara væri að snúa spurningunni við. Hvað gerðist ekki? Getur ekki verið að það hafi ekkert gerst? Getur ekki verið að það hafi ekkert gerst. Ég get ekki tjáð mig um innihaldið en menn verða bara að geta í eyðurnar. Hvers vegna ég labbaði út.“
„Hafi staðan verið alvarleg, þá bara drottinn minn dýri, þá er hún alvarleg núna. Það er þannig,“ sagði Vilhjálmur einnig.