Spá meiri hækkun leigu

Horfur eru á enn frekari hækkunum leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu. Leiguverðið hefur enda ekki fylgt kaupverði fasteigna að undanförnu. Þetta segir Ari Skúlason, sérfræðingur hjá Landsbankanum, í samtali við Morgunblaðið í dag. Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði, vekur athygli á sambandi milli leiguverðs og kaupverðs fasteigna. Hann nefnir að einnig í samtali við blaðið að spáð sé 6-9 prósent hækkun fasteignum í ár og tekur undir með Ara að líklega muni leiguverðið fara að nálgast kaupverðið.

Samhliða þessari þróun segir Ólafur Heiðar tölur sjóðsins benda til að íbúðum sem leigðar eru ferðamönnum sé hætt að fjölga. Þrátt fyrir það hækki leigan. Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslandshótela, segir hótelíbúðum að fækka vegna þyngri reksturs.

Framboð á húsnæði mun því á allra næstunni ekki aukast nema þvert á móti.