Sölvi Blöndal sem frá árinu 2011 sí hefur starfað sem efnahagsráðgjafi hjá Gamma er hættur. Þetta kemur fram í samtali við Vísi. Gamma hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga, eftir að í ljós kom að eigið fé virðist hafa þurrkast út á aðeins einu ári. Þannig telur Marinó G. Njálsson samfélagsrýni að eitthvað misjafnt hafi átt sér stað og undir það tekur Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR.
Á Vísi er greint frá því að Sölvi segi að lengi hafi staðið til að hann myndi færa sig um set. Hann mun hafa sagt starfi sínu lausu síðasta haust og er nú að vinna uppsagnarfrest.
Sölvi einbeitti sér að fasteignamarkaðinum á meðan hann var við störf hjá Gamma og kom að stofnun Almenna leigufélagsins þar sem hann var stjórnarformaður. Lá Gamma undir gagnrýni fyrir að kaup hverja íbúðina á fætur annarri og leigja út og hefur ítrekað verið haldið fram að h félagið hafi haft gríðarleg áhrif á hinn almenna leigumarkað. Sölvi segir við Vísi:
„Það er komið að tímamótum hjá mér. Þetta hefur verið skemmtilegur tími en nú er tímabært að breyta til.“