„Það sem kemur aftur á móti smá á óvart er einlæg ánægja libbanna yfir því að manneskja sem bæði aðhyllist innilega nýfrjálshyggju og er einnig afturhald þegar kemur að högum flóttafólks gerist dómsmálaráðherra, bara af því að hún er kona.“
Þetta segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Er hún afar ósátt við að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hafi verið skipuð dómsmálaráðherra. Á sama tíma gagnrýnir hún einnig þá sem hafa lýst yfir ánægju með ákvörðun Bjarna Benediktssonar en margir hafa samglaðst Áslaugu, og þá hefur verið áberandi að stjórnmálamenn í öðrum flokkum hafi talið að rétta manneskjan hafi verið skipuð í starfið. Sólveig segir í pistli á Facebook:
„Af hverju eru íslenskir liberalar glaðir yfir því að Áslaug Arna sé orðin dómsmálaráðherra? Toppar ídentitý pólitíkin núna alltaf allt? Get ég beðið um að fá eitthvað pólitískt manifestó frá íslenskum liberölum þar sem þeir útskýra sýn sína á samfélagið og skoðanir, framsett á einhvern skiljanlegan máta?“
Sólveig telur að Áslaug hafi brugðist í málefnum flóttamanna og hælisleitenda. Hún segir:
„Áslaug Arna er ein þeirra sem greiddi atkvæði gegn frumvarpi um réttarbætur fyrir börn sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi. Hún ásamt hinum sem börðust gegn því að börn fengju tækifæri á að hætta að vera á flótta, faldi sig á bak við að frumvarpið gæti aukið hættuna á mansali en á sama tíma hafði hún og hitt fólkið í Sjálfstæðisflokknum ekki áhuga á því að setja eina einustu krónu í að berjast gegn mansali.“
Að vera kona
„Áslaug Arna og félagar földu semsagt grimmd sína gagnvart sakleysingjum á bak við uppgerðar-áhyggjur af glæpum gegn sakleysingjum. Frekar magnað auðvitað en kemur svosem ekki á óvart. Það sem kemur aftur á móti smá á óvart er einlæg ánægja libbanna yfir því að manneskja sem bæði aðhyllist innilega nýfrjálshyggju og er einnig afturhald þegar kemur að högum flóttafólks gerist dómsmálaráðherra, bara afþví að hún er kona,“ segir Sólveig og endar pistil sinn á þessum orðum:
„Sem langverandi og langvarandi kona skil ég bara ekkert í þessu og þess vegna vil ég manifestó. Þegar pólitík er orðin með öllu óskiljanlegur leikur furðufugla þá hljótum við alþýðan að krefjast í það minnsta oggulítils texta með smá útskýringum, ekki satt?“