Sólrún Diego hefur óskað eftir aðstoð lögmannsstofunnar LOGOS. Er beiðni Sólrúnar heldur óvenjuleg en hún vill að DV verði bannað að birta myndefni af samfélagsmiðlum og eins að leyfi fyrir myndbirtingum sem Sólrún hafði áður gefið DV verði afturkallað. Frá þessu er greint í sandkorni í DV í dag. Þar segir:
„Það vakti mikla athygli þegar að DV sagði frá blekkingum Sólrúnar Diego, áhugakonu um þrif, fyrr á þessu ári. Sólrún hafði auglýst vörur á samfélagsmiðlum sem unnusti hennar seldi án þess að taka fram hagsmunatengsl eða að um auglýsingu væri að ræða. Þá var einnig sett spurningarmerki við leyfi um sölu á vörunum en eftir umfjöllun DV var netverslun unnustans lokað.“
Eftir þessa umfjöllun barst DV bréf frá lögmannsstofunni LOGOS. Þar var DV bannað að birta myndefni af samfélagsmiðlum Sólrúnar, hvort sem það væru skjáskot eða tengill á myndir. Jafnframt var leyfi á notkun mynda úr fortíðinni afturkallað.
Um þessa einkennilegu beiðni segir á DV:
„Vísar stofan í höfundalög sem voru síðast uppfærð árið 2016. Ljóst er að lögin eru úrelt, enda ekki einu orði minnst á samfélagsmiðla.“