Sjálfstæðisflokkurinn hélt ekki meirihluta sínum í kosningunum í gær. Sögulegar sviptingar eru í Eyjum. Flokkurinn fékk 45,4 prósent atkvæða, fær 3 menn kjörna og missir tvo. Sjálfstæðisflokkurinn í Eyjum hefur ekki fengið minna fylgi síða árið 1986.
Framboðið Fyrir Heimaey fékk rúm 34 prósent atkvæða og þrjá fulltrúa. Og Eyjalistinn missti mann með 20.4 prósent.
Sjálfstæðisflokkinn vantaði sex atkvæði til að halda meirihluta sínum. Kjörsókn var yfir 80 prósent.
Í sjö manna bæjarstjórn verða þessi:
Sjálfstæðisflokkur:
Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Helga Kristín Kolbeins og Trausti Hjaltason.
Fyrir Heimaey:
Íris Róbertsdóttir, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir og Elís Jónsson
Eyjalistinn:
Njáll Ragnarsson