Einn stærsti jöklabíll sem smíðaður hefur verið hér á landi verðI tilbúinn til notkunar í vor. Trukkurinn verður meðal annars búinn klósetti, ofnakerfi og útsýnispalli og á að nýta undir jöklaferðir upp á Eyjafjallajökul með lúxusívafi. Bílasmiðurinn Ástvaldur Óskarsson sagði við RÚV í vikunni að undirvagninn sé úr amerískum slökkvibíl og dekkinn verði 78 tommu að stærð.