Slíta viðræðum ef engar nýjar hugmyndir koma fram

Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands hefur samþykkt að slíta viðræðum ef það koma ekki fram nýjar hugmyndir eða viðbrögð frá Samtökum atvinnulífsins á næstu dögum. Viðræðunefnd SGS hafi því fulla heimild til að lýsa yfir árangurslausum viðræðum þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SGS. Þar segir að undanfarnar þrjár vikur hafi samningaviðræður um nýjan kjarasamning SGS og SA farið fram undir verkstjórn ríkissáttasemjara og að forsendur viðræðna hafi verið umræða um nýja launatöflu, styttingu vinnuvikunnar, samræmingu á vinnumarkaði og fleiri atriði.

„Í viðræðum undanfarinna vikna hefur ýmislegt áunnist, annað þokast í rétta átt og sumt er óleyst og því virðist ekki vera lengra komist að sinni. Sú vinna sem hefur verið unnin er þó gagnleg og nýtist vonandi í framhaldinu,“ segir einnig í tilkynningunni.

Vegna þess að ekki virðist lengra komist að sinni hefur samninganefnd SGS samþykkt að komi ekki nýjar hugmyndir eða viðbrögð frá Samtökum atvinnulífsins á næstu dögum hafi viðræðunefndin fulla heimild til lýsa yfir árangurslausum viðræðum, þrátt fyrir milligöngu Ríkissáttasemjara, og slíta viðræðum.

Tilkynningin í heild sinni:

„Undanfarnar þrjár vikur hafa samningaviðræður um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífins farið fram undir verkstjórn Ríkissáttasemjara. Forsendur viðræðna hafa verið umræða um nýja launatöflu, styttingu vinnuvikunnar, samræmingu á vinnumarkaði og fleiri atriði.

Í viðræðum undanfarinna vikna hefur ýmislegt áunnist, annað þokast í rétta átt og sumt er óleyst og því virðist ekki vera lengra komist að sinni. Sú vinna sem hefur verið unnin er þó gagnleg og nýtist vonandi í framhaldinu.

Samninganefnd SGS samþykkir að komi ekki nýjar hugmyndir eða viðbrögð frá Samtökum atvinnulífsins á næstu dögum hafi viðræðunefndin fulla heimild til lýsa yfir árangurslausum viðræðum þrátt fyrir milligöngu Ríkissáttasemjara og slíta viðræðum.“