Tvítuga konan sem var bjargað úr læk í hlíðum Fjarðardals á Seyðisfirði í fyrrakvöld er enn illa slösuð en á batavegi. Hún gekkst undir bakaðgerð í gær sem er sögð hafa heppnast ágætlega. RÚV greinir frá.
Konan, sem er frá Sviss, liggur enn á gjörgæslu. Hún starfar á Íslandi og er sögð vön því að ganga um fjalllendi, bæði hérlendis og í Sviss.
Konan féll um 20 metra í brattri fjallshlíð fyrir ofan golfvöllinn á Seyðisfirði. Þar lá hún illa slösuð og bjargarlaus í hlíðinni.
Árvakur kylfingur á níræðisaldri, Jóhann Sveinbjörnsson heyrði hjálparköll frá konunni og kallaði eftir aðstoð lögreglu til að fá það á hreint að köllin sem hann taldi sig heyra kæmu frá manneskju. Jóhann kvaðst í samtali við RÚV í gær ekki hafa séð neitt en talið að um hjálparköll frá manneskju væri að ræða.
Bjarki Borgþórsson, lögreglumaður á Seyðisfirði, sagði í samtali við RÚV í gær að það hafi tekið upp undir klukkustund að finna hvaðan hljóðið kom en að það hafi að lokum tekist. Björgunarsveitin hafi þá þegar verið kölluð út, auk þess sem stuðst var við dróna. Konan hafi á endanum fundist illa slösuð en þrátt fyrir það með meðvitund.
„Mér finnst þetta ótrúlega seigt í henni að hafa lifað þetta af, en hún var með fulla meðvitund þegar við komum að henni, en hún gat sig hvergi hreyft. Hún bara rétt blikkaði augunum og gat svarað okkur,“ sagði Bjarki og bætti við að konan ætti Jóhanni líf sitt að launa.
„Ég er ekkert viss um að hún hefði getað verið í þessum aðstæðum alla nóttina, hvað þá fram eftir degi.“