Slæm reynsla af eldisiðjunni

Séra Gunnlaugur Stefánsson sóknaprestur skrifar um laxeldi.

Greinina er að finna í Fréttablaðinu í dag. 

Séra Gunnlaugur skrifar að íslenskir umboðsmenn norskra eldisrisa boða nú að laxeldi bjargi búsetunni á landsbyggðinni.  Það sögðu stjórnendur Samherja og Granda ekki þegar þeir ráku umfangsmikið fiskeldi á Austfjörðum.

Þeir þekktu áhættuna og leyfðu sér ekki að beita skrumi í áróðri. Samherji batt miklar vonir við eldið og byggði t.d. stórt laxasláturhús á Norðfirði og vandaði til allra verka skrifar séra Gunnlaugur.

Nú koma norskir eldisrisar aðþrengdir vegna slæmarar reynslu af eldisiðjunni fyrir lífríkið á þeirra heimaslóð og heimta ókeypis afnot af íslenskum sjó í von um skjótfenginn gróða.

Í fyrstu var fullyrt að eldið skaði ekki lífríkið. Rannsóknir leiða annað í ljós og eldistækni með opnum sjókvíum er nú talin úrelt í Noregi og er reyndar bönnuð þar í nýjum eldisfjárfestingum.

Gripið er í síðasta hálmstráið og boðað að laxeldi bjargi landsbyggðinni og að sjálfsagt sé að fórna minni hagsmunum fyrir stærri.

Séra Gunnlagur spyr hvaða minni hagsmunir eru hér í húfi?

Það er hin óspillta náttúra sem við teljum til einstakra gæða.  En það er einmitt landsbyggðarfólkið umfram aðra sem ber ábyrgð á að nýta þessi gæði af sjálfbæri og varðveita af virðingu.

Séra Gunnlaugur lýkur grein sinni með því að spyrja hvað verður ef endir af ævintýrum verður sá sami og Samherji og Grandi reyndu?

Dettur nokkrum manni í hug að norskum eldisrisum þyki þá ofurvænt um íslenskt landsbyggðarfólk?

Nána www.visir.is

[email protected]