Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun leggja fyrir Alþingi skýrslu um ráðstöfun lands og landsréttinda innan þjóðlendna og tekna af gjöldum fyrir slík réttindi og er skýrslan sú sjöunda í röðinni á jafnmörgum árum. Þetta kemur fram á vef Stjórnaráðsins. Þar segir enn fremur:
„Skýrslan fjallar um verkefni ráðuneytisins sem tengjast þjóðlendum á árinu 2018, sem og störf óbyggðanefndar og samstarfsnefndar um málefni þjóðlendna á síðasta ári. Má þar sérstaklega nefna umsagnir um skipulagsáætlanir, leyfi til framkvæmda og vinna við grunnsamkomulag sem ráðuneytið kemur að í samráði við sveitarstjórnir og aðra hagsmunaaðila.
Þá er að finna í skýrslunni upplýsingar frá sveitarfélögum um tekjur sem þau höfðu af nýtingu lands og landsréttinda innan þjóðlendna á árinu 2018 og hvernig staðið var að ráðstöfun þeirra tekna á árinu.