Skólarnir að byrja: sex einkenni eineltis sem foreldrar verða að vera meðvitaðir um

Það styttist í skólana og því mikilvægt að vekja foreldra og skólastjórnendur til umhugsunar um sex einkenni eineltis. Afleiðingar eineltis geta haft áhrif ævilangt. Sá sem lendir í einelti segir oft ekki frá því. Hann fer jafnvel að trúa því að hann eigi eineltið skilið og sé lítils virði. Þetta kemur fram á síðunni Verndum börnin.

Einelti er vandamál sem snertir okkur öll og með því að fræða foreldra er þessi stutta grein stuðningur við börn þeirra, hvort sem þau eru þolendur, gerendur eða „saklausir áhorfendur“.

Hringbraut hvetur lesendur til að deila skilaboðunum á Facebook og þannig má draga úr líkum á að börn verði fyrir einelti í skólum í vetur. Á síðunni Verndum börnin segir:

1. Niðurlægjandi athugasemdir t.d. hvað varðar útlit, klæðnað eða athafnir, uppnefni, fliss eða augngotur.

2. Útskúfun og afskiptaleysi. Barn má ekki vera með í leik eða er ekki boðið í afmæli. Það er ekki látið vita þegar eitthvað stendur til. Ekki er tekið tillit til skoðana og tillagna einstaklings, þær eru virtar að vettugi.

3.  Eigum er stolið, þær vanvirtar eða eyðilagðar.

4.  Einstaklingur er þvingaður til að gera eitthvað sem brýtur niður sjálfsvirðingu hans og stríðir gegn réttlætiskennd.

5.  Líkamlegt ofbeldi.

6.  Sögusagnir og lygi eru bornar út um einstakling eða fjölskyldu hans.

Hvernig veistu hvort barnið þitt er lagt í einelti? Vísbendingar um að svo sé:

Barnið vill ekki fara í skólann, alltaf, stundum eða tímabundið

Barnið er hrætt við að fara í og úr skóla, vill láta keyra sig

Barnið er svangt þegar það kemur heim

Barnið týnir bókum, hlutum eða fötum

Barnið týnir vasapeningunum sínum af og til

Barnið grætur sig í svefn og fær martraðir

Ábyrgðin er alltaf hinna fullorðnu, ekki barnanna. Þátttaka foreldra og hlutverk þeirra og starfsfólks sem fyrirmynda er lykilatriði. Foreldrar og þeir sem vinna með börnum og unglingum þurfa að vita hvað einelti er og vera meðvitaðir um einkenni þess. Þó mikilvægast sé að fyrirbyggja einelti þarf jafnframt að tryggja að ef upp koma eineltismál í skóla eða félagsstarfi með börnum sé til staðar áætlun um hvernig sé tekið á málum. Einnig er mikilvægt að allir aðilar málsins fái aðstoð og stuðning.

Við hvetjum foreldra barna til að deila þessari grein á Facebook, til að auka á meðvitund um einelti strax í upphafi skólaárs og koma í veg fyrir að slíkt eigi sér stað.