Ristilkrabbamein er þriðja algengasta krabbamein bæði karla og kvenna á Íslandi og önnur algengasta dánarorsök þeirra sem látast af völdum krabbameins. Hægt er að draga stórlega úr bæði nýgengi ristilkrabbameins og dánartíðni vegna þess með skipulögðum ristilspeglunum.
Allir þeir sem orðnir eru fimmtugir ættu að láta skima fyrir ristilkrabbameini með því að fara í ristilspeglun. Þetta kom fram í öðrum þætti af Tímarím, sem var sýndur á Hringbraut laugardaginn 9. febrúar sl.
Í þættinum var rætt við meltingarfæralæknana Ásgeir Theodórs og Sigurð Einarsson og skurðlækninn Tryggva Stefánsson. Fram kom að skimun fyrir krabbameini getur haft mikið gildi bæði heilsufarslega og fjárhagslega. Ekki er samt sama hvernig skimun er framkvæmd. Hefðbundin skimun fyrir ristilkrabbameini felst í því að leitað er að blóði í hægðum. Með þeirri aðferð er hægt að greina krabbamein, en ekki forstig krabbameins. Með ristilspeglun er hins vegar hægt að finna forstig krabbameins og fjarlægja, þannig að ekki verði úr krabbamein.
Í þættinum kom fram að mikill munur er á árangri af krabbameinsskimun hjá konum, þegar horft er annars vegar til skimunar fyrir brjóstakrabbameini og hins vegar til skimunar fyrir leghálskrabbameini. Brjóstaskimunin virðist hafa takmarkað gildi á meðan leghálsskimun nemur forstig krabbameins og getur þannig afstýrt því að konur fái krabbamein. Ristilspeglun er svipuð leghálsskimun að þessu leyti.
Samkvæmt útreikningum Tryggva Stefánssonar getur skipuleg ristilspeglun hér á landi sparað 3 milljarða á ári þegar horft er til lengri tíma og samsvarar það því að á 40 árum sparist sem samsvarar einum nýjum Landspítala.
Annan þátt af Tímarími má finna í heild sinni hér:
Næsti þáttur Tímaríms verður kl. 20:30 á laugardagskvöld, 16. febrúar. Í þeim þætti verður fjallað um offitu og fylgikvilla hennar, með áherslu á sykursýki 2. Einnig verður fjallað um þau ráð sem tiltæk eru í baráttunni við ofþyngd, sem læknar telja að mikilvægt sé að skilgreina sem sjálfstæðan sjúkdóm, sem taka þurfi alvarlega. Rætt verður við læknana Örnu Guðmundsdóttur og Auðun Svavar Sigurðsson og einnig við Björn Leifsson í World Class.