Ragnheiður Davíðsdóttir, framkvæmdstjóri Krafts, segir sjóði félagsins að rýrna en í hann sækir ungt fólk með krabbamein sem á ekki fyrir meðferð. Dæmi eru um að einstaklingar sem sæki styrk til Krafts hafi varið á aðra milljón króna fyrir læknismeðferð og hafi ekki lengur fjárhagslegt bolmagn sjálft til að halda því áfram. Rætt verður við ungan einstakling sem er í þessari stöðu á Hringbraut annað kvöld ásamt Ragnheiði.
Kraftur, félag veitir ungu, krabbameinsveiku fólki og aðstandendum þess upplýsingar og ráðgjöf um hvaðeina er lýtur að hagsmunamálum og fræðslu vegna krabbameins, eins og segir á heimasíðu félagsins.