Sjö mínútna þögn á einkareknum miðlum

Stjórnendur fjölmiðla 365, Símans, Hringbrautar, ÍNN og Útvarps Sögu segjast í tilkynningu fagna jákvæðum viðbrögðum þingmanna þvert á flokka við ákalli um breytingar. Krafan er um að fjölmiðlalögum verði breytt til þess að jafna samkeppnisstöðu einkerekinna miðla á íslenskum fjölmiðlamarkaði.

Til áréttingar um mikilvægi málsins munu einkareknir ljósvakamiðlar slökkva á útsendingum sínum í 7 mínútur fimmtudagskvöldið 1. september næstkomandi.

Engar útsendingar verða frá átján fjölmiðlum: Útvarp Saga, ÍNN, Stöð 2, Stöð 3, Bíórásin, Bylgjan, LéttBylgjan, GullBylgjan, FM Extra, FMX, 80’s Bylgjan, FM957, X-ið, Sjónvarp Símans, K100, Retro, Sjónvarp Hringbrautar og Útvarp Hringbrautar FM89,1.

Í tilkynningu frá í dag segir: „Afar mikilvægt er að einkareknir fjölmiðlar sitji við sama borð og erlendir keppinautar sem nú herja bæði á áskriftar- og auglýsingamarkað á sama tíma og þeir greiða hér hvorki skatta né gjöld. Þessir miðlar lúta ekki íþyngjandi reglum um meðhöndlun efnis sem innlendir fjölmiðlar reglum gera. Einkareknir miðlar treysta á tekjur af auglýsingasölu til að standa undir starfseminni og því væri öllum til hagsbóta væru opinberir fjölmiðlar ekki á þeim markaði.“