Hinar vinsælu en á stundum umdeildu Reykjavíkurdætur senda þrjá fulltrúa sína til Lindu Blöndal á Þjóðbraut í kvöld, fimmtudag. Steinunn Jónsdóttir, Steiney Skúladóttir og Þuríður Blær Jóhannsdóttir eru gestir þáttarins.
Níu af tólf Reykjavíkurdætrum munu taka brátt yfir Litla sviðið í Borgarleihúsinu með eigið verk Reykjavíkurdætur: The Show sem þær eru ískyggilega þöglar um en segja þó að þær fari þar yfir þau fjögur ár sem Reykjavíkurdætur hafa unnið saman. Frumsýnt er 11.maí og munu níu þeirra taka þátt. Þær fara yfir óvæntar og stórkostlegar mótttöku á Hróarskeldu í fyrrasumar og hverju þær standa fyrir.