Sif Konráðsdóttir, sem var aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfisráðherra í 64 daga, hefur verið látin taka pokann sinn vegna afglapa á lögmannsferli sínum fyrir rífum áratug.
Sif segir í yfirlýsingu að uppgjör við skjólstæðinga sína hafi dregist á langinn þegar hún hætti lögmannsstörfum árið 2007 og flutti til útlanda af persónulegum ástæðum: \"Í kjölfarið hóf ég störf hjá alþjóðastofnun og lagði tímabundið inn lögmannsréttindi mín, svo sem mér bar að gera. Allmörgum málum var ólokið þegar ég fór utan, þar á meðal uppgjöri við þrjá skjólstæðinga mína sem verið höfðu brotaþolar í tveimur kynferðisbrotamálum. Uppgjör við þá dróst úr hömlu af ástæðum sem ég ber ábyrgð á,“ segir í yfirlýsingu Sifjar.