Síðasta ár var mér óbærilegt

Árni Páll Árnason, fráfarandi formaður Samfylkingarinnar, sagði á Hringbraut í morgun, að síðasta ár hafi verið sér óbærilegt.

Hann sagði að erfitt hafi verið að horfa á fylgi Samfylkingarinnar minnka endalaust. Hann sagðist taka undir þegar sundrungu innan flokksins væri kennt um hvernig komið er.

Samfylkingin hefur ekki áður mæst með eins lítið fylgi nú.

Árni Páll er samt ekki af baki dottinn og ætlar að sækjast eftir endurkjöri til Alþingis.