Sigrún Björnsdóttir leikskólaliði birti í dag tvær myndir og biður hún fólk um að finna villuna.
„Sex starfsmenn með tvö tré, fjórir starfsmenn með 20 börn. Hvar er villan?“
Myndirnar sem Sigrún birti sýnir annars vegar sex starfsmenn Reykjavíkurborgar vera að gróðursetja tvö tré og hins vegar tvo starfsmenn leikskóla með heilan hóp af leikskólabörnum.
Sérð þú villuna?