Kristinn Sigurðsson, stjórnarformaður Sendibílastöðvarinnar, og Þórður Guðbjörnsson, framkvæmdastjóri Nýju sendibílastöðvarinnar, eru á meðal þeirra sem segja að Íslandspóstur hafi staðið í undirboðum á akstri til lengri tíma. Þeir segja að slík undirboð hafi áhrif á alla sem starfa innan sendibílabransans og telja að Íslandspóstur fari út fyrir verksvið sitt þegar fyrirtækið gerir tilboð í akstur á stærri vörum. Um málið er fjallað í Morgunblaðinu í dag.
„Það er ýmislegt sem við höfum verið að keyra í gegnum tíðina sem er horfið af því að þeir eru að bjóða þetta langt niður,“ segir Kristinn í samtali við Morgunblaðið. Hann segist hafa lent í því að missa vinnu sem Íslandspóstur hafi tekið yfir með meintu undirboði og telur að flestir í bransanum hafi orðið fyrir áhrifum af slíkum undirboðum.
Þórður tekur undir þetta og segist kannast við undirboð Íslandspósts þó erfitt sé að færa sönnur á þau. Hann telur að viðskipi við Nýju sendibílastöðina hafi minnkað síðan Íslandspóstur hafi byrjað að stunda meint undirboð fyrir einhverjum árum.
„Á sínum tíma var IKEA til dæmis með heimkeyrslu frá Íslandspósti og þá vildu menn meina að Íslandspóstur byði í aksturinn á allt öðrum forsendum en ef önnur fyrirtæki byðu í, því Íslandspóstur er náttúrulega með ríkisstyrkta einokun að einhverju leyti sem hann notaði til þess að skapa sér samkeppnisgrundvöll,“ segir Þórður.
Almenn sendibílaþjónusta Íslandspósts var lögð af um síðustu áramót vegna sáttar sem gerð var við Samkeppniseftirlitið.
Óeðlilegt að flytja stærri vöru
Kristinn telur óeðlilegt að Íslandspóstur standi í almennum flutningi á stærri vöru sem falli utan póstþjónustu, eins og flutningum fyrir raftækja- og lyfjafyrirtæki.
„Þeir voru til dæmis í dreifingu fyrir Elko með þvottavélar, ísskápa og annað slíkt, sem mér finnst ekki vera póstur. Þeir eru í þessu fyrir ýmis önnur fyrirtæki og fara með þetta langt undir almennt verð,“ segir Kristinn og bætir því við að Íslandspóstur sendi enn vörur frá IKEA.
Þórður er sammála þessu: „Fyrirtækið var auðvitað stofnað á sínum tíma til þess að dreifa bréfum til landsmanna og sú þjónusta hefur borið skarðan hlut frá borði svo ég get alls ekki fallist á að flutningarnir sem þeir standa núna í falli undir hlutverk fyrirtækisins.“
Aðspurður um hvort það samræmist hlutverki Íslandspósts sem opinbers fyrirtækis að gera almenna samninga um flutninga á stærri vörum segir Birgir Jónsson, forstjóri Íslandspósts: „Það er ekki mitt hlutverk eða fyrirtækisins að vera með skoðun á því, ekkert frekar en að vera með skoðun á einkavæðingu fyrirtækisins. Eigandi fyrirtækisins verður bara að setja reglur.“
Ekki hlutverk Íslandspósts að vera í undirboðum
Birgir gat hvorki hafnað því né staðfest að fyrirtækið hefði stundað undirboð. „Ef undirboð viðgangast er náttúrlega um að gera að koma því upp á yfirborðið því ég get alveg verið sammála því að það sé ekki hlutverk Íslandspósts að vera í undirboðum á markaði.“
Hann hvetur þá aðila sem telji sig hafa orðið fyrir undirboðum af hálfu Íslandspósts að tilkynna slíkt. „Undirboð eru auðvitað lögbrot og það þarf að kæra það í sérstakt ferli ef fólk upplifir að það sé að gerast. Ég mun ekki skrifa undir það að við stöndum í slíku.“