Guðbergur Guðbergsson, fasteignasali hjá Bæ segir farir sínar ekki sléttar þegar kemur að þjónustu sýslumannsembættisins á höfuðborgarsvæðinu yfir sumartímann, en stofnunin sé nánast í dái á þessum tíma árs.
Fyrir vikið tefjist þinglýsingar og afgreiðsla lána svo nemur mörgum vikum og segir Guðbergur þetta há allri fasteignasölu að sumri til; ekki einasta tefji þetta viðskipti fasteignasala, kaupenda og seljenda heldur dragi þessi fótadráttur úr sölu. Hér sé ekki við starfsfólkið að sakast, heldur fjárveitingavaldið sem haldi þessu eina embætti í fjársvelti á þessum árstíma á meðan önnur sambærileg embætti úti á landi geti sinnt þjónustu sinni með eðlilegum hætti.
Þetta kemur fram í þættinum Heimilinu á Hringbraut sem frumsýndur er annaðkvöld en hann fjallar um allar hliðar á rekstri og viðhaldi heimilanna, en í þættinum að þessu sinni er meðal annars fjallað um ljóshönnun híbýla, ráðdeild í matarinnkaupum, tryggingamál og úrvalið í einni helstu hjólaverslun landsins skoðað en æ fleiri landsmenn taka nú stálfáka sína til kostanna um stíga og slóða landsins.
Allar ábendingar um efnistök í þættinum eru vel þegnar á netfanginu [email protected], en umsjármaður þáttanna er Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Heimilið er vikulega á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:00 á föstudagskvöldum.