Grétar Þór Eyþórsson, stjórnmálafræðiprófessor við Háskólann á Akureyri metur það svo að ríkisstjórn katrínar jakobsdóttur sigli lygnan sjó þrátt fyrir augljós vandræði innan VG.
Eins og kunnugt er hafa Andrés Ingi Jónsson og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmenn VG ekki spilað með restinni af þingflokknum það sem af er kjörtímabili, en þau styðja ekki stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og lögðust nýverið á sveif með stjórnarandstöðunni í vantraustsmálinu á hendur Sigríði Á Andersen, dómsmálaráðherra.
Rætt er við Grétar Þór í Fréttablaðinu í gær þar sem hann segir meirihlutann vera sterkan á þingi: \"Þótt tveir þingmenn VG styðji ekki ríkisstjórnina er þingmeirihlutinn samt sterkur. Þá munu Rósa Björk og Andrés Ingi líkast til ekki kjósa gegn stjórninni í mörgum málum. Því eru líkur á að þetta hafi lítil sem engin áhrif á ríkisstjórnina og þann meirihluta sem uppi er á þingi,\" segir Grétar Þór.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingflokksformaður VG viðurkenndi fyrir helgi að samstarfið innan þingflokksins væri stirt. Á fundi hans í dag á að freista þess að slíðra sverðin og róa öldurnar innan hans.