„Þetta er hugsanlega vanhugsaðasta og vandræðalegasta upphlaup sem ég hef orðið vitni að á mínum 8 ára ferli í pólitík,“ segir Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, um brotthvarf þriggja fulltrúa Sjálfstæðisflokksins af fundi skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í morgun.
Hildur Björnsdóttir, einn fulltrúanna, tjáði Fréttablaðinu í morgun að flokkurinn efaðist um að til fundarins hefði verið boðað með löglegum fyrirvara. Tveir fundargestir hefðu ekki fengið fundarboð og fundargögn hefðu ekki borist þeim fyrr en eftir hádegi í gær. Á dagskrá væru 75 mál.
Nánar á