Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir í færslu á Facebook að fullyrðingar Samtaka atvinnulífsins um að kröfur VR séu 60-85 prósent hækkun á öll laun sé fjarstæðukenndur áróður og varla svaraverður. Hann segir þetta hljóta að opinbera sturlað viðhorf SA.
Í færslunni fer Ragnar Þór yfir tilboð SA og segir það fela í sér kaupmáttarrýrnun. Hann segir tilboðið fela í sér 15.000 króna hækkun á launum undir 600.0000 krónum og 2,5 prósent á laun umfram það, auk sérstakrar 5.000 krónu hækkunar á lægstu taxta sem eru í dag 270.408 krónur.
„Verðbólguspá fyrir 2019 er 3,4 til 3,6% Á meðan lýðskrumarar og aðrir lobbíistar sérhagsmuna tala um nútíma hagfræði, kulnun í hagkerfinu eða skrumskæla kröfugerðir verkalýðshreyfingarinnar eins og kom fram í málflutningi SA í gær þá er rétt að benda á nokkrar staðreyndir. Tilboð SA til meginþorra félagsmanna VR felur í sér kaupmáttarrýrnun! 2,5 prósent hækkun launa í 3,6 prósent verðbólgu er ekki ábyrg nálgun í kjaraviðræðum! 15.000 kr. hækkun á laun undir 600.000 eru 8.975 krónur útborgað!“ skrifar Ragnar Þór.
Hann segir fráleitt af SA að bjóða félagsmönnum VR 2,5 prósent hækkun á meðan laun bankastjóra Landsbankans hafi hækkað um 82 prósent, laun Alþingismanna og æðstu embættismanna hafi hækkað um 45 prósent og að félagsmönnum VR sé boðin 15.000 króna launahækkun á meðan laun framkvæmdastjóra SA muni hækka um 90.000 krónur samkvæmt sama tilboði, allt undir því yfirskini að SA vilji nálgast málin af meiri ábyrgð.
Færsla Ragnars Þórs í heild:
„Tilboð SA til félagsmanna VR.
15.000 kr. Á laun undir 600.000 kr. og 2,5% á laun umfram það. ATH. Ekki 20.000 kr.!!
Sérstök 5.000 kr. hækkun á lægstu taxta sem eru í dag 270.408 kr.
Verðbólguspá fyrir 2019 er 3,4 til 3,6%.
Á meðan lýðskrumarar og aðrir lobbíistar sérhagsmuna tala um nútíma hagfræði, kulnun í hagkerfinu eða skrumskæla kröfugerðir verkalýðshreyfingarinnar eins og kom fram í málflutningi SA í gær þá er rétt að benda á nokkrar staðreyndir.
Tiilboð SA til megin þorra félagsmanna VR felur í sér kaupmáttarrýrnun!
2,5% hækkun launa í 3,6% verðbólgu er ekki ábyrg nálgun í kjaraviðræðum!
15.000 kr. hækkun á laun undir 600.000 eru 8.975 kr. útborgað!
Leigufélögin eru byrjuð að hækka leigu um tugi þúsunda og dæmi er um einstæða móður sem fékk bréf frá Almenna leigufélaginu þar sem tilkynnt var um 20.000 kr. hækkun á leigu í nýjum árs samningi. SA býður þessum félagsmanni VR 8.975 kr. upp í þann kostnað. Mismunurinn er 11.025kr. sem uppá vantar.
SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 2,5% á meðan laun bankastjóra Landsbankans hækkuðu um 82%.
SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 2,5% á meðan laun Alþingismanna og æðstu embættismanna hækkuðu um 45% og yfir.
SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 15.000 kr. á meðan laun framkvæmdastjóra SA munu hækka um 90.000 kr. Samkvæmt sama tilboði.
Stjórnvöld og SA tala um kólnun í hagkerfinu, ábyrgð og svigrúm á meðan laun bankastjóra Landsbankans hækka um 1.700.000 kr. Á mánuði, eða 82%, og þykir sú hækkun hófleg í núverandi árferði að mati stjórnenda bankans.
Í kröfugerð VR er sama krónutöluhækkun á alla og að lægstu laun hækki úr 300.000 kr. Í 425.000 kr á mánuði á þremur árum.
Fullyrðingar SA um að krafa okkar sé 60 til 85% á öll laun er svo fjarstæðukenndur áróður að hann er varla svaraverður en hlýtur að opinbera sturlað viðhorf viðsemjenda okkar til kröfugerðarinnar og stöðunar á vinnumarkaði.“