Róbert Smári Gunnarsson segir fréttaflutning DV og Bylgjunnar, um að faðir hans, Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, hafi verið drukkinn á sýningu Borgarleikhússins um Elly Vilhjálmsdóttur, vera kolrangan. Í færslu, sem Róbert gaf Fréttablaðinu leyfi til að birta, spyr hann hversu mikið sé hægt að leggja á fjölskyldu þingmannsins.
Í hádegisfréttum Bylgjunnar er það haft eftir viðmælendum að Gunnar Bragi, sem er meðal þeirra þingmanna sem koma fyrir á Klaustursupptökunum, hafi verið drukkinn og kallað fram í á sýningunni um söngkonuna dáðu föstudaginn 18. janúar. Gunnar Bragi lýsti því nýverið yfir að hann hafi ekki bragðað áfengi frá því að Klaustursmálið kom upp.
Róbert segist sjálfur hafa verið með föður sínum á sýningunni, auk Sunnu Gunnars Marteinsdóttur, kærustu Gunnars Braga, og segir hann þetta einfaldlega ekki vera rétt.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/frettir/segir-frettir-af-meintri-drykkju-foeur-sins-a-elly-kolrangar