\"...helstu tíðindin eru þau að Björt framtíð skuli fyrir kosningar yfirgefa þá stöðu sem hún virtist vera komin í á miðjunni til að tryggja sér aðild að nýrri vinstri stjórn,\" skrifar Þorsteinn Pálsson í nýjasta pistli sínum á Hringbraut.
Þar skimar þessi þrayutreyndi stjórnmálamaður yfir hið pólitíska svið í kosningavikunni og bendir á að allt fram á haust hafi skoðanakannanir bent til þess að Björt framtíð gæti átt það á hættu að fá ekki mann kjörinn. Vandi hennar hafi fyrst og fremst verið sá hvað hún var í nánu samstarfi stjórnarandstöðuflokkanna og fyrir vikið hafi hún ekki náð að skapa sér sérstöðu: \"Atkvæðagreiðslan um búvörusamningana gjörbreytti þessari stöðu,\" skrifar Þorsteinn, en þar klauf BF sig frá öðrum andstöðuflokkum, svo sem Samfylkingunni \"sem lengi hafði talað með digrum barka um nauðsyn breytinga í landbúnaði,\" en \"varð að gjalti þegar hún ákvað að sitja hjá í þeirri atkvæðagreiðslu,\" skrifar Þorsteinn og botnar: \"Það er mesta hjálp sem núverandi ríkisstjórn hefur fengið til að viðhalda kyrrstöðu um sérhagsmuni.\"
Þorsteinn bendir á beygjuna sem Björt framtíð hefur nú tekið: \"Nú viku fyrir kosningar gengur Björt framtíð til liðs við hjásetuflokkana á vinstri vængnum til þess að fá sæti við þeirra borð. Upplýst hefur verið að engin stór mál skilji flokkana að. Skilaboðin til kjósenda eru þau að engar málefnalegar hindranir standi í vegi vinstri stjórnar.\"
Hann bætir við. \"Ef til vill breytir þetta ekki svo miklu. Björt framtíð átti alltaf þann kost að semja við vinstri flokkana eftir kosningar. Einu málefnalegu áhrifin eru þau að Björt framtíð missir samningsstöðu. Nú hefur hún fyrir fram bundið sig í þetta samstarf án þess að búið sé að gera út um málefnin. Eftir kosningar hefur hún því mjög veika samningsstöðu um málefni.\"
Og loks þetta: \"Í raun þýðir þetta að Píratar og VG þurfa ekki að fórna neinu í málefnum sem einhverju skiptir til að hafa Bjarta framtíð með. En þeir þurfa að gefa einn ráðherrastól eftir.\"