Seðlabankinn lækkar stýrivexti

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,5 prósent. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 4 prósent. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Seðlabankanum.

Þar kemur fram að samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í maíhefti Peningamála hafa hagvaxtarhorfur breyst verulega frá síðustu spá bankans. Í stað 1,8 prósent hagvaxtar á þessu ári eins og gert var ráð fyrir í febrúar er nú spáð 0,4 prósent samdrætti. Þessi umskipti stafi einkum af samdrætti í ferðaþjónustu og minni útflutningi sjávarafurða vegna loðnubrests. Af þessum sökum muni framleiðsluspenna snúast í slaka á næstunni.

Greint er frá því að verðbólga hafi verið 3,1 prósent á fyrsta fjórðungi ársins en aukist í 3,3 prósent í apríl. Undirliggjandi verðbólga hafi þróast með áþekkum hætti og munurinn milli mælikvarða á verðbólgu með og án húsnæðis hafi ekki verið minni frá haustinu 2013.

Gengi krónunnar hefur haldist tiltölulega stöðugt það sem af er ári en áhrif lækkunar þess síðastliðið haust á verðbólgu hafa enn sem komið er verið minni en vænst var. Viðsnúningur í efnahagsmálum geri það að verkum að verðbólguhorfur hafi breyst nokkuð á skömmum tíma og gerir spá bankans ráð fyrir að verðbólga nái hámarki í 3,4 prósent um mitt ár en hjaðni í verðbólgumarkmið um mitt næsta ár.

Kjarasamningar í góðu samræmi við verðbólgumarkmið

Í tilkynningunni segir einnig að þótt nýgerðir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði feli í sér myndarlegar launahækkanir hafi niðurstaða þeirra verið í betra samræmi við verðbólgumarkmiðið en margir hafi búist við. Verðbólguvæntingar hafi því lækkað á ný en þær hækkuðu umtalsvert er leið á síðasta ár. Langtímaverðbólguvæntingar á markaði eru nú komnar undir 3 prósent.

Fram kemur að samdráttur í þjóðarbúskapnum muni reyna á heimili og fyrirtæki en að viðnámsþróttur þjóðarbúsins sé umtalsvert meiri nú en áður. Svigrúm peningastefnunnar til að mæta efnahagssamdrættinum sé einnig töluvert, sérstaklega ef fer sem horfir og verðbólga og verðbólguvæntingar haldast við verðbólgumarkmið. Þá munu boðaðar aðgerðir stjórnvalda í tengslum við gerð kjarasamninga leggjast á sömu sveif.

Peningastefnan mun á næstunni ráðast af samspili þróunar efnahagsumsvifa annars vegar og verðbólgu og verðbólguvæntinga hins vegar.

Vextir verða sem hér segir:

1. Daglán 5,75 prósent
2. Lán gegn veði í verðbréfum 4,75 prósent
3. Innlán bundin í 7 daga 4,00 prósent
4. Viðskiptareikningar 3,75 prósent
5. Bindiskyldar innstæður, meðaltalsuppfyllt 3,75 prósent
6. Bindiskyldar innstæður, föst bindiskylda 0,00 prósent

SA fagna ákvörðuninni

Í yfirlýsingu frá Samtökum atvinnulífsins er ákvörðunin sögð sigur fyrir lífskjör fólks. „Vaxtalækkun Seðlabanka Íslands er mikið gleðiefni fyrir heimili og fyrirtæki landsins. Vaxtalækkunin styrkir Lífskjarasamninginn með því að draga úr vaxtakostnaði heimila og skapar svigrúm fyrir fyrirtækin til að mæta kostnaðarauka kjarasamningsins.“

„Verkalýðshreyfingin á hrós skilið fyrir að hafa lagt á vaðið og tekið áhættu við gerð Lífskjarasamningsins,“ segir einnig í yfirlýsingunni.

SA þykir skýr launastefna hafa verið mörkuð fyrir allan vinnumarkaðinn. „Launastefnan hefur verið borin undir atkvæði verkalýðsfélaga sem samþykktu hana með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða, eða 80%, og  98% atvinnurekenda í Samtökum atvinnulífsins studdu hana.“

„Vaxtalækkun Seðlabankans í dag markar skörp skil frá vinnubrögðum fortíðar og er sigur fyrir lífskjör alls þorra landsmanna,“ segir að lokum í yfirlýsingunni.