Sást síðast í sandgerði: „hann var búinn að búa hérna í nokkur ár“

Pólskur maður Mateusz Tynski að nafni sást síðast í Sandgerði þann 28. febrúar. Samtökin ITAKA, sem leita að týndu fólki auglýsa eftir Mateusz Tynski. Íslenskur nágranni Mateusz Tynski segir í samtali við Fréttablaðið:

„Ég skutlaði honum í flug og hef ekkert séð hann meira. Hann var á leiðinni til Póllands. Hann var búinn að búa hérna í nokkur ár. Þetta er rólyndisdrengur og þægilegur náungi.“

Mateusz Tynski er lýst sem rólyndismanni sem sé ekki í neinni óreglu. Mateusz er 29 ára gamall og 177 sentimetrar á hæð.