Samúðarkveðja til srí lanka

Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson sendi í dag samúðarkveðju til Maithripala Sirisena, forseta Srí Lanka, og annarra íbúa þar vegna hryðjuverkanna sem framin voru þar í landi í gær. Sagði forseti í kveðjunni að hugur okkar væri hjá þeim sem misst hefðu ástvini eða orðið fyrir árásum; og að ekkert geti réttlætt slík grimmdarverk.

Jafnframt kvaðst forseti vona að umburðarlyndi í trúarlegum efnum, sem fyrir hendi væri í Srí Lanka, mundi ná að dafna og aukast í framtíðinni.