Samherji kaupir í eimskip

Heildarkaupverð þeirra 50.600.000 hluta sem Samherji hefur keypt af bandaríska fjárfestingarfélaginu The Yucaipa Company nemur 11.132 milljónum króna. Systurfélag Samherja hf., Samherji Holding ehf., er kaupandinn af bréfunum í Eimskipafélagi Íslands hf.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá er um að ræða samtals 25,3% hlut í félaginu en hagnaður íslenska hluta Samherjasamstæðunnar árið 2016 nam 14.310 millljónum króna. Samherji Holding ehf. er félag um erlenda starfsemi Samherja.

„Eimskip er gamalgróið félag með trausta innviði, þrautreynt starfsfólk og góðan skipastól,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Hann segir að Samherji og Eimskip hafi á undanförnum árum víða verið með starfsemi á sömu svæðum.

Nánar á

http://www.vb.is/frettir/samherji-er-kaupandinn-i-eimskip/148603/