Ragnar Árnason, hagfræðiprófessor og fyrrverandi bankaráðsmaður í Seðlabankanum, segir gjaldeyrishöftin sem lögð voru á 2008 hafa gengið nærri eignaupptöku og þegar komið hafi verið fram á árið 2009 hafi ekki verið þörf fyrir svo viðamikil höft, en fara hafi þurft aftur á sjötta áratuga síðustu aldar til að finna viðlíka gjaldeyrishöft hér á landi. Þetta kemur fram í þættinum 21 á Hringbraut í kvöld þar sem Ragnar er gestur Björns Jóns Bragasonar.
Ragnar er mjög gagnrýninn á framgöngu Seðlabankans í málum er varða gjaldeyriseftirlitið og segir Samherjamálið hafa verið byggt á sandi frá upphafi. Enginn fótur hafi verið fyrir grunsemdum bankans.
Hann segir stjórnendur bankans hafa sýnt af sér valdhroka og farið fram í Samherjamálinu og fleiri málum með offorsi og látum og haldið þeim til streitu að því er virðist til þess eins að verja persónulegt stolt stjórnenda bankans.