Sveitarstjórnarkosningar eru í algleymi, kosið verður á laugardag. Rætt er um höfuðborgina sérstaklega í umræðum þingmanna á Þjóðbraut hjá Lindu Blöndal.
Í síðasta þætti komu þingmenn frá Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu og Pírötum.
Í kvöld mæta og ræða komandi kosningar þau Willum Þór Þórsson þingmaður Framsóknar í Suðvesturkjördæmis, Gunnar Bragi Sveinsson, úr sama kjördæmi frá Miðflokki og Inga Sæland Reykjavíkurþingmaður Flokks Fólksins.
Einnig setjast þær hjá Lindu, þær Rósa Björk Brynjólfsdóttir þingmaður VG og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður og formaður Viðreisnar en báðar eru þær þingmenn í Suðvestur kjördæmi. Rósa Björk nefndi sérstaklega stöðu Sjálfstæðisflokksins en fylgi hans í brogarstjórn hafi helmingast sem sé orðinn föst stærð hans en einnig sé flokkurinn að klofna t.d. á Seltjarnarnesi og Vestmannaeyjum. Þorgerður nefndi áherslu Viðreisnar á að byggja upp stöðu kvennastétta, s.s. kennara í borginni.
Kosningamálin fjalla um samgöngur og húsnæðismál að stórum hluta en þingmennirnir voru á einu máli um að Borgarlína væri ekki mál sem hægt væri að kjósa um þar sem margt sé óvíst um það. Inga segir mislæg gatnamót geta leyst umferðartafir mun frekar um húsnæðismálin taldi Inga að sveitarfélögin á Höfuðborgarsvæðinu ættu að sameinast til að ná fram hagræði, alveg eins og krafan er um að gert sé á landsbyggðinni. Hátt lóðaverð taldi Gunnar Bragi eina meginorsök að ekki sé nægt framboð á húsnæði í borginni og víðar við hana.