Alls dróst sala á nýjum fólksbílum saman um 39% hér á Íslandi samanborið við sama tíma árið 2018. Að sögn Bílgreinasambandsins er talið að megin ástæða þessa samdráttar sé fall flugfélagsins WOW, ásamt þá óvissu sem niðurstaða kjarasamninga hafi haft. Í samtali við RÚV segir María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins að fólk virðist einnig vera að bíða eftir umhverfisvænum bílum á markaðnum.
„Inn í það kom hins vegar fall WOW auk þess sem kjarasamningar voru lengi að skýrast. Þetta hafði gríðarleg áhrif. Einnig er umræða um bann við dísilbílum aðeins að valda því að fólk hikar, þannig að fólk er að halda að sér höndum að fjárfesta í slíkum bílum, sem þarf ekki að vera. Og fólk er að bíða eftir umhverfisvænum bílum. Ef við horfum á sama tíma í fyrra, þá vorum við komin í 15.970 bíla, á móti 9.784 bílum í ár og því er samdrátturinn 38,7% sem er töluvert meira en við gerðum ráð fyrir.“
Þá segir Margrét að 25% af öllum nýjum bílum sem hafa verið seldir á þessu ári séu annaðhvort rafmagnsbílar eða tvinnbílar. Þá eru bílaleigur landsins að kaupa um 44% af öllum nýjum bílum sem eru fluttir inn til landsins, sem er aukning frá síðustu tveim árum.