Saka hver annan um njósnir

Skólabræðurnir og æskuvinirnir Ragnar Arnalds, Jón Baldvin Hannibalsson og Styrmir Gunnarsson minnast pólitískra mótunarára í hispurslausu spjalli í kvöld á Hringbraut. Hinir fornu vinir rífast meðal annars um það hver varð hvað í pólitík og hver þeirra var helsti njósnarinn í kalda stríðinu.

Þeir ræða sömuleiðis hvað réði því hvaða leið þeir völdu í pólitík en þeir hafa haldið vinskap alla tíð síðan í barnaskóla í Laugarnesinu. Jón Baldvin ræðir uppreisnina gegn Hannibal, rifrildi hans og Styrmis sem endaði úti á götu. Sá síðarnefndi útskýrir sína pólítiska sýn með vísan í fjölskyldu sína sem tók óvinsæla afstöðu í seinni heimstyrjöldinni og Ragnar ítrekar að hann hafi aldrei verið kommúnisti.

Þeir vinirnir eru annars allir að gefa ut bækur um þessar mundir, Jón Baldvin gefur sína út í Þýskalandi og skrifar þar á ensku um viðhorf vesturveldanna til sjálfstæðisbaráttu baltnesku ríkjanna, Styrmir skrifar um frjálshyggjuna sem aldrei varð á Íslandi og Ragnar um æsku- og mótunarár sín í Laugarnesinu, allt þar til hann komst á þing, 24 ára að aldri.

 

Þátturinn hefst kl. 21:00 í kvöld í umsjón Lindu Blöndal og Sigmundar Ernis Rúnarssonar.