Rúmlega helmingur landsmanna, eða 52 prósent, kveðst andvígur innheimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóðvega á Íslandi. Um þriðjungur, 32 prósent, er hlynntur slíkri innheimtu. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 18. - 28. janúar 2019.
Kváðust 34 prósent svarenda mjög andvígir slíkum veggjöldum, 18 prósent frekar andvígir, 21 prósent frekar fylgjandi og 11 prósent mjög fylgjandi. Þá kváðust 17 prósent hvorki fylgjandi né andvíg innheimtu veggjalda. Litlar breytingar reyndust á afstöðu landsmanna frá könnun MMR sem framkvæmd var í maí 2018.
Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins (49 prósent), Vinstri-grænna (44 prósent) og Viðreisnar (44 prósent) reyndust líklegust til að segjast fylgjandi veggjöldum en stuðningsfólk Miðflokksins ólíklegust (14 prósent). Þá var stuðningsfólk Miðflokksins (73 prósent), Flokks fólksins (61 prósent) og Pírata (59 prósent) líklegust til að segjast andvíg innheimtu veggjalda en 65 prósent stuðningsfólks Miðflokks og 61 prósent stuðningsfólks Flokks fólksins kváðust mjög andvíg.
Þá reyndust konur jákvæðari gagnvart veggjöldum en karlar en, 33 prósent kvenna kváðust fylgjandi innheimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóðvega á Íslandi, samanborið við 29 prósent karla. Karlar voru líklegri til að segjast andvígir innheimtu slíkra gjalda (54 prósent) heldur en konur (49 prósent). Jákvæðni gagnvart veggjöldum jókst með auknum aldri en 42 prósent svarenda í elsta aldurshópi kváðust fylgjandi innheimtu veggjalda, samanborið við 36 prósent svarenda á aldrinum 50-67 ára og 27 prósent svarenda undir fimmtugu. Lítill munur var á afstöðu svarenda eftir búsetu.