Rósa Björk sagði í Silfrinu í gær að með grein sem þrír þingmenn Sjálfstæðisflokksins birtu í Morgunblaðinu í gær hafi þeir gert árás á Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra.
Greinina skrifa Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Brynjar Níelsson og Jón Gunnarsson. Þau segja það fráleita ráðstöfun fjármagns að senda sjúklinga til útlanda í liðskiptaaðgerðir þegar hægt sé að gera þær fyrir miklu lægri upphæð hér heima.
Auk Rósu Bjarkar voru gestir Egils Helgasonar í Silfrinu þau Helga Vala Helgadóttir Samfylkingu, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Miðflokknum og svo Óli Björn Kárason Sjálfstæðisflokki sem nokkuð hefur gagnrýnt það sem hann segir vera tvöfalt heilbrigðiskerfi hér á landi:
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/rosa-bjork-sakar-thingmenn-um-aras-a-radherra