„rokkamma íslands“ sæmd fálkaorðunni

Við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær þann 17. júní 2018, sæmdi forseti Íslands 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þeirra á meðal er Andrea Jóns sem hefur um langt árabil verið kölluð „rokkamma“ Íslands  vegna áratuga þátttöku sinnar í íslensku tónlistarlífi og fádæma þekkingu á öllu íslensku rokki og poppi - Andrea hefur undanfarna áratugi m.a. verið útvarpskona á Rás tvö en er einnig plötusnúður á Dillon barnum á Laugaveginum þar sem ganga hefur mátt að henni vísri í mörg ár. 

Þeir sem hlutu fálkaorðuð eru samkvæmt tilkynningu á vef forsetaembættisins: 

Aðalbjörg Jónsdóttir prjónalistakona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar prjónahefðar og hönnunar

Andrea Sigríður Jónsdóttir útvarpsmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til kynningar á íslenskri og erlendri dægurtónlist

Árni Björnsson þjóðfræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskra þjóðfræða og menningar

Edda Björgvinsdóttir leikkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar

Erna Magnúsdóttir forstöðumaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu krabbameinssjúkra

Friðrik Skúlason tölvunarfræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag á sviði upplýsingatækni

Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld, Álftanesi, riddarakross fyrir framlag til íslenskar tónlistar og trúarhefðar

Kristín G. Gunnlaugsdóttir myndlistarmaður, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar myndlistar

Nanna V. Rögnvaldardóttir rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir ritstörf á sviði matarmenningar

Sigurður Steinar Ketilsson fyrrverandi skipherra, Hafnarfirði, riddarakross fyrir framlag til landhelgisgæslu og björgunarstarfa

Stefán Karl Stefánsson leikari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar og samfélags

Steinar J. Lúðvíksson rithöfundur, Garðabæ, riddarakross fyrir framlag til sagnaritunar og blaðamennsku

Sævar Pétursson bifvélavirki, Kópavogi, riddarakross fyrir framlag til varðveislu og endurgerðar gamalla bifreiða

Valgerður Jónsdóttir skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi tónlistarkennslu fatlaðra

 \"\"