Útvarpskonan og skífuþeytirinn Andrea Jónsdóttir, sem stundum hefur verið kölluð rokkamma Íslands segir merkilega sögu sína í Mannamáli Sigmundar Ernis þessa vikuna, en óhætt er að segja að hún hafi víða drepið niður fæti um sína daga.
Hún viðurkennir það í byrjun viðtalsins að vera ekkert endilega skipulagðasti útvarpsmaður landsins, en það sé eiginlega partur af prógramminu hennar að vera bara hún sjálf á öldum ljósvakans fremur en að leika einhvern voðalega kláran plötusnúð. Hún kunni ekki að leika og hún pæli lítið í því hvað hún láti út úr sér, en músíkin sé nú bara aðalatriðið, ekki hún sjálf.
Hún er sveitastelpa, alin upp á Selfossi, með elskulega frjálslyndum foreldrum og drakk í sig sveitaballamenninguna frá unga aldri, en hennar bönd voru Hljómar og Trúbrot og svo náttúrlega Mánar, en hún og Labbi úr þeirri sveitinni eignuðust stelpu upp úr þurru fyrir bráðum 43 árum af því að það var svo lítið við að vera á Selfossi um það leyti.
Hún vissi aftur á móti alltaf að hún væri samkynhneigð - og svo fór að hún var meðal fyrstu lesbíanna á Íslandi sem steig opinberlega fram á þeim árum þegar allt samfélagið var að opnast á áttunda áratugnum, en hún kveðst aldrei hafa mætt fordómum sem út af fyrir sig sé kannski merkilegt.
Hún er af bítla- og hippakynslóðinni sem breytti samfélaginu úr leiðinlegri grámyglu í skemmtilega mannréttindadeiglu þar sem lifandi sköpun tók við af yfirvaldsþrúguðu karlaveldi - og þótt hún nenni aldrei að velta sér upp úr nostalgíunni flýtur með sagan af því þegar hún sat með strákunum í Led Zeppelin í flugvélinni frá Íslandi til Bretlands árið 1970 þar sem þeir voru að segja henni frá því hvað það hefði verið eðlilegt og sjálfsagt mál fyrir einhverja harðgifta konu sem þeir kynntust í partíinu undir morgun að sænga með þeim; Ísland væri greinilega frjálslyndara en breska heimsveldið.
Hún verður sjötug á næsta ári en ætlar að halda áfram að þeyta skífum á skemmtistöðum borgarinnar fram á áttræðisaldur, hið minnsta, en Laugavegurinn um nætur sé eins og hennar annað heimili og hún kveðst aldrei hafa orðið hrædd á rölti sínu um svæðið, enda sé hún sammála leigubílstjóranum sem ók henni heim um árið um að 99,9% fólksins sem skemmti sér í Reykjavík um helgar sé heiðarlegt friðsemdarfólk.
Mannamál var frumsýnt í gærkvöld, endursýnt í dag og er einnig aðgengilegt á á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.