Það er bókaþema í lífsstílsþættinum Ferðalaginu á Hringbraut í kvöld en þar munu þau Linda Blöndal og Sigmundur Ernir taka tvo rithöfunda tali um veru þeirra í útlöndum, hvar þeir hafa báðir starfað um árabil.
Í fyrri hluta þáttarins ræðir Linda Blöndal við Vestfirðinginn Jón Sigurð Eyjólfsson sem var að senda frá sér sína fyrstu skáldsögu, Tvíflautuna sem gerist í Grikklandi, en þar bjó hann einmitt um langt árabil aður en hann fluttist til Spánar þar sem hann lauk við að skrifa bókina. Lífið í Aþenu og allt það gallerí að skrýtnu fólki sem þar er að finna kemur við sögu, bæði í viðtalinu og sögunni.
Í seinni hluta þáttarins sest Sigmundur Ernir niður með skáldbróður sínum Sveinbirni I. Baldvinssyni sem nýverið gaf út heildarsafn verka sinna, Lífdaga, en hann hefur einmitt verið að kynna þá góðu bók á Íslandi að undanförnu, milli þess sem hann flýgur utan til Noregs þar sem hann starfar sem kennari í handritsgerð í háskólanum í Lillehammer. Sveinbjörn hefur eiginlega búið í ferðatösku síðustu áratugina í lífi sínu, en kvartar þó ekki, honum líður ekki síður vel í Noregi en á Íslandi og segir enda Norðmenn miklu líkari Íslendingum en hann hafi í fyrstu gert sér í hugarlund.
Ferðalagið byrjar klukkan 20:00 í kvöld.