Þingsetningin er í dag, annað þingið síðan ríkisstjórn VG og Sjálfstæðisflokksins tók við. Fjárlagafrumvarpið var kynnt í morgun. Þingmennirnir Bryndís Haraldsóttir, Sjálfstæðisflokki, Björn Leví Gunnarsson, Pírötum og Rósa Björk Brynjólfsdóttir,VG ræddu við Lindu vítt og breytt um það sem þau hafa nú þegar glöggvað sig á í fjárlagafrumvarpinu, það sem bar á góma var boðun hækkun skattleysismarka um eitt prósentustig sem Björn Leví taldi harla litla en þó að greinilegt væri að málamiðlarnir milli stjórnarflokkanna hefðu átt sér stað í sumar þar sem t.d. hækkun fæðingarorlofs sé nú boðið en var að ekki í fjármálaáætlun.
Spurt var: Hvað mun breytast í vetur almenningi til hagsbóta?
Einnig bar á góma frétt úr fjárlagafrumvarpinu um að Virðisaukaskattur verður ekki tekinn af bókum eins og fulltrúar allra flokka sögðust ætla að gera fyrir síðustu kosningar en fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að að helsta ástæðan sé sú að nauðsynlegt sé að „viðhalda skilvirkni gildandi VSK-kerfis“.
Þingmennirnir þrír nefndu að auk fjárlagafrumvarpsins væru risamál á dagskrá s.s. ný og margboðuð samgöngustefna auka aðgerðaráætlunar í loftslagsmálum sem nokkrir ráðherrar kynntu í gær. Rósa Björk og Björn Leví voru á sama máli um að áætlunin gefi ekki óyggjandi tilefni til að ætla að Parísar sáttmála eða Kyoto bókun verði náð.
Hér eru brot úr umræðunum í kvöld