Samkvæmt nýrri könnun sem Zenter rannsóknir gerðu fyrir Fréttablaðið á fylgi stjórnmálaflokka er ríkisstjórnin fallin. Sjálfstæðisflokkurinn mælist enn stærstur flokka og bætir lítillega við sig frá fyrri könnun, en hann mælist nú með 21,5 prósenta fylgi. Samfylkingin mælist næst stærst allra flokka á Alþingi með 13,9 prósenta fylgi. Miðflokkurinn fylgir svo fast á eftir með 12,9 prósenta fylgi. Vinstri græn mælast með 12,5 prósenta fylgi, Píratar með 12,3 prósenta fylgi og Viðreisn með 11,4 prósenta fylgi.
Framsókn mælist nú næst minnsti flokkurinn á Alþingi með eingöngu 6,2 prósenta fylgi, en Flokkur fólksins mælist með minnst allra flokka, eða eingöngu 4 prósenta fylgi og fengi ekki mann inn á þing væri kosið í dag. Svo virðist sem að samþykkt þriðja orkupakkans á Alþingi hafi ekki haft veruleg áhrif á fylgi þeirra flokka sem kusu með honum, samkvæmt könnuninni.