Fyrir mánaðamót er von á frumvarpi sem ætlað er að stuðla að bættu rekstrarumhverfi ritstýrðra íslenskra fjölmiðla sem miðla fréttum, fréttatengdu efni og mikilvægu samfélagslegu hlutverki í samráðsgátt stjórnvalda. Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði, hefur undanfarna mánuði unnið að því að reikna út kostnað við mismunandi sviðsmyndir þessu tengdu.
Heimildir Kjarnans herma að þeir útreikningar hafi meðal annars snúist um hvort næði tilgangi frumvarpsins betur, að greiða einkareknum fjölmiðlum styrki úr ríkissjóði eða gera þeim kleift að fá hluta ritstjórnarkostnaðar endurgreiddan.
Niðurstaðan er sú að dreifing þeirrar upphæðar sem til stendur að greiða til fjölmiðla sem frumvinna fréttir er mjög sambærileg í báðum leiðum. Því er líklegt að endurgreiðsluleiðin verði ofan á.
Nánar á