Það var margt um manninn á Reykjavík Airshow síðastliðin laugardag þar sem til sýnis voru flugtæki af ýmsum toga.
\"Váááá\" heyrðist hátt í áhorfendum þegar flugvélar og þyrlur þutu framhjá fólkinu á reykjavíkurflugvelli. Sýningin var mögnuð frá upphafi til enda þar sem sjá mátti allt frá litlum svifum til risavaxinna farþegaflugvéla og allt skrautið þar á milli.
Snædís Snorradóttir fór á sýninguna og ræddi þar við Friðbjörn Orra Ketilsson, áður en hún dreyf sig upp í eina listflugvél með þyrluflugmanni landhelgisgæslunnar honum Andra Jóhannessyni. Andri var svo sannarlega ekkert að spara snúningana og segja má að fréttakonan hafi skemmt sér konunglega.
Allt um þetta í fréttaþættinum 21 í kvöld kl. 21:00, þann 11.september á Hringbraut.