Rekstur flugvalla

Vinnuhópur sem þáverandi innanríkisráðherra Ólöf Nordal setti á laggrinar í ágúst 2016 hefur skilað skýrslu. Hópnum var falið að skoða hvort breytingar á rekstrarfyrirkomulagi innanlandsflugvalla gæti stuðlað að hagkvæmari og skilvirkari almenningssamgöngum.

Niðurstaða hópsins er sú að gera eigi stærstu flugvellina fjárhagslega sjálfstæða þannig að notendagjöld flugvallanna endurspegli í auknum mæli raunkostnað við rekstur þeirra. Telur hópurinn að fjárframlög frá ríkinu til styrktar innanlandsflugi eigi með breyttu fyrirkomulagi að renna að mestu til flugrekenda til að mæta auknum kostnaði eða farþega með niðurgreiðslu á farmiðum til að koma í veg fyrir að fargjöld hækki vegna hærri notendagjalda.

rtá

Nánar www.stjornarradid.is