Rannsaka lífsbaráttu borgarkríunnar

„Sjófuglavörp inni í borg eru afar sjaldséð fyrirbæri og það á sannarlega við um kríuvarpið í Vatnsmýrinni og við Reykjavíkurtjörn. Engar rannsóknir hafa verið gerðar á varplíffræði þessara borgarkría og er óþekkt hvaða takmörkunum þær eru háðar,“ segir Hrafnhildur Vala Friðriksdóttir, BS-nemi í líffræði, sem rannsakað hefur lífsbaráttu borgarkríunnar í sumar og kannað viðhorf bæði Reykvíkinga og gesta í borginni til þessa smáa en harðskeytta fugls.

Um þetta má lesa á vef Háskóla Íslands.

Krían er sá farfugl sem á að baki lengsta ferðlagið þegar hún kemur hingað til lands til að verpa á vorin en vetrarstöðvar hennar eru sunnarlega á suðurhveli jarðar. Útreikningar hafa sýnt að elstu fuglar fljúga sem nemur þremur ferðum til tunglsins, slíkt er farflug kríunnar. Þessi tignarlegi fugl hefur verið mjög áberandi í friðlandinu í Vatnsmýri síðustu ár, ekki síst eftir átak Háskóla Íslands, Norræna hússins og Reykjavíkurborgar um endurheimt varp- og votlendis í mýrinni. Óvíða er fuglinn í jafnmiklu návígi við manninn og það heillar bæði Hrafnhildi og leiðbeinendur hennar sem vilja varpa nánara ljósi á þetta sambýli fugls og manns.

Hrafnhildur vinnur verkefnið með stuðningi Nýsköpunarsjóðs námsmanna og Reykjavíkurborgar og nýtur leiðsagnar þeirra Freydísar Vigfúsdóttur, dýravistfræðings og sérfræðings við Háskóla Íslands, Snorra Sigurðssonar, líffræðings og verkefnastjóra á deild náttúru og garða á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, og Katrínar Önnu Lund, prófessors við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands.

„Allflestar borgir hýsa fjölda fuglategunda, oftast söngfugla og dúfur í borgartrjám, endur, gæsir, svani á tjörnum borgargarða. Sjófuglar verpa hins vegar sjaldan í borgum enda búsvæði þeirra við sjó og þeir verpa því oftast á afskekktum eyjum eða við björg þar sem afrán er lítið og stutt í sjó til ætis. Sjófuglabyggðir í miðri borg eru afar sjaldséðar en kríuvarpið í Vatnsmýri setur sterkan svip á miðborgina á sumrin,“ segir Freydís sem hefur í sumar rannsakað kríuvarp víðar um landið.

Hún bendir jafnframt á að ef krían nái ekki í nægilegt æti hafi það áhrif á varpið og verði það að viðvarandi ástandi leiði það til þess að varpið hverfur. „Það hafa engar rannsóknir verið gerðar á varplíffræði borgarkría í Reykjavík og því er óþekkt hverjar helstu takmarkanir eru á varpinu m.t.t. fæðu og framleiðni, afránshættu og truflun eða röskun varplands, t.d. vegna ágengra plantna,“ segir Freydís enn fremur.

Hvaða hættur stafa að kríuvarpinu?
 

Markmið verkefnisins verður því að kanna hvaða hættur stafa að kríuvarpinu í Vatnsmýri og við Reykjavíkurtjörn og rannska varplíffræði fuglanna út frá varpárangri, fæðu og atferli.

 

Nánar um rannsóknina hér