Atvinnuvegaráðuneytið hefur ekki enn svarað erindi Félags atvinnurekenda um niðurfellingu tolla á túlípönum. Í dag fást engir túlipanar á Íslandi, en innlend framleiðsla á sér bara stað frá desember og fram til páska. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.
Félag atvinnurekanda sendi í byrjun október erindi til ráðgjafarnefndar um inn og útflutning landbúnaðarvara um niðurfellingu tolla á túlipönum. Sé skortur á ákveðinni vöru hér á landi er hægt að fella niður tolla á þeirri vöru samkvæmt búvörulögum. Um tvær vikur eru liðnar frá því Atvinnuvegaráðuneytið sagðist ætla svara erindinu, en enn hefur ekkert svar borist.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekanda segist vona að ráðuneytið sé ekki að draga málið á langinn þar til innlend framleiðsla komi á markað og ekki þurfi að fella niður tolla vegna skorts.
„Núna er staðan sú að rúmlega mánuði eftir að ráðuneytið fékk erindi vegna skorts hefur það enn ekki svarað. Í svona málum, þar sem það er skortur á vörum á markaði, þá þarf eðli málsins samkvæmt að bregðast hratt við. Við vonum náttúrlega að hér sé ekki um það að ræða sem ráðuneytið hefur stundum áður gert, að draga óþægileg mál á langinn og vona að þá komi innlend framleiðsla á markað þannig að það þurfi ekki að leyfa innflutning. Það er hins vegar nokkuð ljóst að löggjafinn ætlaði þessu kerfi ekki að virka þannig.“